Nýr vefur - Virkni einstakra hluta vefsins er ekki tilbúin.

Um Specialisterne

Specialisterne á Íslandi eru stofnaðir 2011 að danskri fyrirmynd. Í Danmörku er starfseminni skipt í tvo hluta, þjálfunar- og matshluta annars vegar og viðskiptahluta hins vegar,þar sem einstaklingar eru þjálfaðir í nákvæmnisvinnu, svo sem hugbúnaðarprófunum og seldir út sem ráðgjafar.

Við höfum staðfært þetta hér á Íslandi. Við leggjum höfuðáherslu á þjálfun og mat á einstaklingum og finnum störf sem henta þeim vel. Við hjálpum atvinnurekendum að nýta sér vinnusamninga TR sem greiða í upphafi 75% af launum viðkomandi einstaklings, en fara síðan lækkandi.

Við sáum fljótlega að ráðgjafaþjónusta að hætti Dana er einungis möguleg í stórum samfélögum þar sem bæði er úrval verkefna hjá stórum fyrirtækjum og hægt að handvelja fáa einstaklinga til að vinna þau.

Nálgun okkar hér á Íslandi er orðin fyrirmynd fyrir nokkur sambærileg fyrirtæki sem hafa verðið stofnuð víða um heim á síðustu árum! Með okkar nálgun höfum við náð fram hámarks jákvæðum áhrifum fyrir samfélagið og náum að hjálpa fleirum en ella.

Arður af starfseminni

  • Þjóðhagslegur árlegur ávinningur vex á hverju ári eftir því sem fleiri fara í vinnu frá okkur.
  • Bætt líðan einstaklinga á einhverfurófi.
  • Betri líðan og ró hjá fjölskyldum og aðstandendum.
  • Betri þekking í þjóðfélaginu og meðal vinnuveitenda á styrkleikum einstaklinga á einhverfurófi.
  • Fleiri verðmætar og vinnufúsar hendur á atvinnumarkaði